VesturnhöfnVesturnhöfn

Einstakar íbúðir við höfnina

Hafin er bygging á einstökum íbúðum við Vesturhöfn í 101 Reykjavík.

Á tveimur byggingarreitum munu rísa stök 3 til 5 hæða hús með fjölbreyttum íbúðum við gömlu höfnina við miðbæ Reykjavíkur. Saman munu húsin mynda randbyggð sem er brotin upp með gönguleiðum milli húsa og leiða inn í sólríkan inngarð.

Undir reitunum verða bílakjallarar með fjölda einkabílastæða ásamt rúmum geymslum fyrir hverja íbúð og einnig munu bílskúrar fylgja mörgum íbúðum.

Staðsetningin er einstök í hjarta borgarinnar við hafnarbakkann, í nálægð við Grandann og rétt við miðbæ Reykjavíkur en þó fjarri þeim skarkala sem fylgir miðbæjarbragnum.

Hér á heimasíðu Vesturhafnar munu koma inn frekari upplýsingar og teikningar af húsunum sem og fyrirkomulagi íbúða á næstu mánuðum. Almenn sala íbúða mun hefjast 2027.

Viljir þú bóka einkafund til að fá frekari upplýsingar fylltu þá út reitina hér að neðan:

Bóka fund

    VesturnhöfnVesturnhöfn
    Vesturnhöfn